Öryggisatriði
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað
við lög.
ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Ekki má koma tækinu fyrir í ökutæki. Ekki má nota tækið eða farsíma til að stýra
eða stilla tækið við akstur; leggja skal ökutækinu fyrst.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á notagildi
þeirra.
SLÖKKT SKAL Á TÆKINU Á SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu nálægt lækningabúnaði.
HAFA SKAL SLÖKKT Á TÆKINU Í FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.
SLÖKKT SKAL Á TÆKINU ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki má nota tækið nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða
sterk efni.
SLÖKKVA SKAL Á TÆKINU ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar takmarkanir. Ekki má nota tækið þar sem verið er að sprengja.
NOTIST AF SKYNSEMI
Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.
AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf
tæki.
ÖRYGGISAFRIT
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar.
TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
4
Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.