Nokia Remote Camera PT 6 - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Hægt er að nota vararafhlöðuna nokkur hundruð sinnum en að því
kemur að hún gengur úr sér. Þegar notkunartími er orðinn greinilega
styttri en eðlilegt er skal kaupa nýja rafhlöðu. Aðeins má nota rafhlöður
sem samþykktar eru af Nokia.

Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í
notkun. Sveiflur í hitastigi geta haft áhrif á hleðslugetu rafhlöðunnar.

Aðeins má nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota
skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup
getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma
eða penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni.
(Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta
gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli
skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem
veldur tengingunni.

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum dregur það úr
afkastagetu hennar og endingu. Tæki með of heitri eða of kaldri

background image

I n n g a n g u r

9

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin.
Einkum hefur mikið frost áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld! Farga skal rafhlöðum í samræmi við
staðbundnar reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt
er. Ekki má fleygja þeim með heimilisúrgangi.