Nokia Remote Camera PT 6 - 3. Grunnþættir í notkun

background image

3. Grunnþættir í notkun

myndavélarinnar

Þú getur stjórnað myndavélinni með því að senda textaskilaboð í
myndavélina eða með Remote Camera Manager forritinu. Sjá “Remote
Camera Manager hlaðið niður” á bls. 18. Remote Camera Manager gerir
þér kleift að koma á þráðlausri Bluetooth-tengingu á milli
myndavélarinnar og farsíma ef tækin tvö eru innan 10 metra frá hvort
öðru. Það kostar ekkert að stilla myndavélina með Bluetooth.

Aðalnotandi myndavélarinnar hefur leyfi til að nota alla valkosti hennar.
Ef öðrum notendum er bætt við myndavélina eru réttindi þeirra
takmörkuð. Upplýsingar um notendaréttindi og það hvernig á að bæta
við nýjum notendum er að finna í “Notandastillingar” á bls. 34.

Þú getur sent nokkrar skipanir í sömu textaskilaboðunum með því að
aðgreina þær með kommu.

Þegar þú sendir textaskilaboð í myndavélina sendir hún þér
staðfestingarboð þegar hún hefur afgreitt beiðni þína.