Nokia Remote Camera PT 6 - Myndavélin stillt með tölvu

background image

Myndavélin stillt með tölvu

Ef þú vilt stilla myndavélina með tölvuhugbúnaði geturðu hlaðið niður
hugbúnaðinum Nokia Remote Camera PC Configurator af
www.nokia.com. Hugbúnaðurinn PC Configurator styður stýrikerfin
Windows 2000/XP og 15 MB þurfa að vera laus á harða diskinum til að
setja hann upp. Til að nota PC Configurator þarftu samhæfa tölvu sem
tengist myndavélinni með þráðlausri Bluetooth-tækni eða DKU-2
gagnasnúru sem er fáanleg sem aukahlutur. Frekari upplýsingar um
tengimöguleika við tölvur er að finna í vefhjálp PC Configurator-
forritsins.