Nokia Remote Camera PT 6 - 8. Umhirða og viðhald

background image

8. Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf
gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í
ábyrgð.

Ekki má nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar.
Færanlegu hlutirnir í því geta skemmst.

Ekki má geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr
endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum
plastefni.

Ekki má geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt
rafrásaspjöld.

Ekki má reyna að opna tækið öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.

Tækinu má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það. Óvarleg
meðferð getur skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni
til þess að þrífa tækið.

Ekki má mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

background image

V i ð b ó t a r ö r y g g i s u p p l ý s i n g a r

60

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur (svo sem
myndavélar-, hreyfiskynjara- og ljósnemalinsur).

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við tækið, rafhlöðuna,
hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með
það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til lagfæringar.